Dansk Íslenska English 

Horsens og umhverfi

Horsens er fallegur ca. 60 þús. manna bær á mið-austurströnd Jótlands (ca.50 km. frá Billund og 40 km. frá Århus). Bærinn var lengi vel þekkastur fyrir sitt gamla fangelsi sem nú er tekið úr notkun eftir að hafa lokað inni marga glæpamennina i 150 ár. Nú er komið nýtt fangelsi í Enner Mark og vinnur Horsens að því að gera gömlu fangelsis bygginguna að fangelsissafni.

Nú er Horsens orðið þekktara fyrir menningu og verslun. T.d. hefur margt heimsfrægt tónlistarfólk komið hér fram,mörg áhugaverð söfn er hér að finna og  Middelalderfestival í Horsens  er þeim sem upplifað hafa ógeymanlegt.

Verslun blómstrar í bænum og Horsens er talinn einn besti verslunarstaður í Danmörku hvað verðlag og vöruúrval snertir.

Lítil en góð baðstönd er hér í bæ og um 30 km. í stærri, mjög góðar baðstrendur t.d. Juelsminde, Saksild og Hov. Frábær golfvöllur er hér og stutt í aðra álíka góða.

Margt skemmtilegt er hægt að gera í nágrenninu t.d. er stutt í Himmelbjerget, siglingu á kajak og kanó, ”Put and take” og marga góða antikmarkaði er hér að finna.